Vafamál

 

Af sælgæti er súkkulaði best

það sætir tilveruna allra mest

en kossinn veitir unað  engu líkan

ég engu jafnað get á við einn slíkan.

 

Súkkulaði og kossa nú kannað hafa

klókir segjast um þetta í vafa,

ég óttast bara þeir aldrei hafi kysst

af unaðslegri athöfn lífsins misst.

 

2

 


mbl.is Súkkulaði hefur meiri áhrif á heilann en ástríðufullur koss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahahahaha, má ég nú frekar biðja um súkkulaði....?!?!?!?! 

Gudny Anna Arnthorsdottir (IP-tala skráð) 16.4.2007 kl. 22:29

2 Smámynd: Unnur Sólrún

Ha,ha,ha.  Já.  Þú skalt fá súkkulaði mín kæra vinkona og það ku vera til súkkulaðikossar sem varla er verra eða hvað?

Skemmtifréttir eru svo nauðsynlegar þessa kosningaundirbúningsdaga.

Faðmlag.

Unnur Sólrún, 16.4.2007 kl. 23:35

3 identicon

Kossar og súkkulaði er gott saman.Takk fyrir sendinguna elsku Unnur mín,færð marga kossa fyrir frá mér og súkkulaði frá gemsanum sem malar eins og köttur þessa stundina.

Sigurjón Friðriksson (IP-tala skráð) 17.4.2007 kl. 15:06

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Já, ég elska einmitt svona fréttir. Góða nótt, elsku krúsan mín besta.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.4.2007 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband