31.12.2009 | 13:38
Gleðilegt nýtt ár!
Norðanvindurinn nætt hefur þrátt
napur á fjallstindum barið,
við söknum þín milda sunnanátt
með siglandi skýjafarið.
Inni í hlýjunni höldum við til
meðan hefur sig burt þetta tímabil.
Árið stendur hér illa klætt,
enn á brott það heldur,
á höfði skaðað, því hefur blætt,
því hroki og græðgi veldur.
Við kveðjum það gjarnan, við gluggann stöndum,
því glaðlega veifum með báðum höndum.
Við setjumst ánægð með óskrifað blað
ótrauð nú semjum að nýju.
Frumsamdir skrifast þættir á það
af þekkingu, ástúð og hlýju.
Í liði okkar ljúfust er sólin,
sem lagt hefur yfir sig nýárskjólinn.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.12.2009 | 17:54
Lopaljóðin
Nokkrar myndir frá kynningum á bókinni minni, lopaljóðum í sauðalitum
Sala á bókinni gengur vel og ég vona að bókin gleðji.
(Allar myndir teknar af Jörgen Midander)
Gaman! Áritanir.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.12.2009 | 10:29
Jólagjafahandbókin
Jólagjafahandbókina hérna ætla að birta,
hana má nota ef í álinn fer að syrta.
Ef áttu litla peninga þú alltaf gefið getur
góða sneið af tíma á kort það fært í letur.
Ef áttu góða vini sem eru önnum kafnir
sem yfir þrif og tiltekt stundum virðast hafnir,
fyrir jólahátíðina bjóddu þeim að þrífa
og þeir munu af hrifningu um íbúðina svífa.
Svo má alltaf bjóða að baka góða köku,
búa um rúm og yrkja kannski eina litla stöku,
passa litlu börnin, þeim gæðatíma gefa,
gleðja þau og spennandi ævintýrin vefa.
Einnig skaltu muna það að þörf er alltaf á
að þvo og strauja vonir, í framtíðina að spá,
gefa nokkur faðmlög, falleg orð að skrifa
til fólks um þetta undur sem nefnt er að lifa.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.12.2009 | 08:54
Góðan dag
Þreyttur stundum vart dagurinn drattast á fætur,
dimmur og snúinn, heldur að enn sé nótt.
Einstaka morgna gleði fjarri hann grætur,
grá eru tár hans og köld en það breytist skjótt.
Því birtan læðist inn eftir litla stund
og lífsglaður brosir morgunninn eftir þann fund.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2009 | 11:45
Millikafli
Þó dagurinn hvílist í desember lengi
og dulbúist jafnvel sem kvöld,
þá leikur af snilld á lifandi strengi,
af ljósinu þiggur hann völd.
Hann minnir á gleði, það gæfa sé
að gefa sér tíma, örlítið hlé
og ef að við fögnum því barni sem býr
í brjóstum okkar, þá myrkrið flýr.
(Úr Lopaljóðum)
Ljóð | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2009 | 11:28
Öryggi
Mikið er ég fegin að frostið komi enn,
að fannir muni leggjast á jörðina senn,
að veðurfarið einnkennist af umhleypingum hér,
að allt sé þetta næstum því eins og vera ber.
Þegar okkar eigin verk á engan hátt standast,
og öll þessi efnishyggja hátíðlega andast,
þá er svo gott að sjá að veðrið föstum fótum
sem fagurlimað tré hér skotið hafi rótum,
að ennþá komi árstíðir með alla sína kosti,
að ennþá kyssi haustið með ,,varagloss" úr frosti.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2009 | 16:13
gleymum ei
Tendruð ljós í litríkum röðum
lýsa upp flesta glugga.
Við fylgjumst með börnum á götunni glöðum,
þau gantast, úti er mugga.
Einhver dreifir aðventublöðum
á ánægju hvergi ber skugga.
Gráturinn er á öðrum stöðum
þar sem enginn er börnin að hugga.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2009 | 10:12
Sólskinsmegin
Inn um stofugluggann, geislar ljóssins læðast
ljúfir eins og börn, gildi þessa dags
og þó að sumir eyðist þá aðrir glaðir fæðast,
elskulegir fylgja mér allt til sólarlags.
Hugsun mína styrkja svo byrðar geti borið,
benda mér á allt það góða sem ég hef,
þeir dimmum skuggum eyða, efla ljúfir þorið,
orðin klæða litum sem hér ég ykkur gef.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.11.2009 | 09:32
Ástin
Glóir í huga, gyllt sem stjarna,
er glampi í augum saklausra barna,
hún kitlar í maga, kætir alla,
er keisaraynja tignustu fjalla.
Hún gefur vængi, veitir unað,
vermir meira en hafði þig grunað.
Hún særir einnig svo undan blæðir,
þó oftast sárin að nýju græðir.
Í vináttu er hún vandlega ofin,
vefurinn sá ei létt sýnist rofinn.
Ástin er litrík ótrúleg kennd,
eins og af himnum til okkar send.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 09:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.11.2009 | 10:45
lopaljóð í sauðalitum - útgáfa
Kæru bloggvinir og allir aðrir sem þetta lesa. Nú er óratími síðan ég var hér síðast og tímabært að hefja leik að nýju. Bókin mín, lopaljóð í sauðalitum er nýkomin út og finnst í flestum bókaverslunum. Ég vona að þið eigið eftir að njóta bókarinnar sem er öll myndskreytt. Þið getið skoðað hana með því að smella á þessa slóð:
http://issuu.com/unnursolrun/docs/lopaljod
Eitt ljóð úr bókinni
Vefnaður
Úr orðunum ykkar ég ætla hér að spinna
allra mýkstu gluggatjöld hugrenninga minna.
Í gegnum þau brýst sólin með sælubros á vörum,
sigurinn í augum, því hún veit að okkur spjörum.
Litirnir í tjöldunum þeim töframátt gefa
með tónaflæði varkárnu áhyggjur sefa
og þegar læðist inn hér ofvakið kvöld,
ástúðlega dreg ég fyrir þessi gluggatjöld.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



gudnyanna
fjola
gretarro
baddahall
madddy
kaffi
gattin
skordalsbrynja
dora61
dunni
jyderupdrottningin
milla
gudr
vild
aglow
hjartagull
hronnsig
ingibjhin
jenfo
juljul
julli
martasmarta
methusalem
mortenl
hafstein
ransu
ridartfalls
heidarbaer
bokakaffid
zordis



